Viktoría krónprinsessa til Akureyrar

Viktoría nýtur mikilla hylli hvert sem hún fer.
Viktoría nýtur mikilla hylli hvert sem hún fer.

Viktoría, krónprinsessa Svíþjóðar, og eiginmaður hennar, Daníel prins, eru í heimsókn á Íslandi og liggur leið þeirra norður á land í dag. Skötuhjúin verða í Húsavík og á Mývatni framan af degi en koma síðdegis til Akureyrar og heimsækja háskólann. Þar verður efnt til málstofu um málefni Norðurslóða og sagt frá margvíslegu starfi á Akureyri sem tengist Norðurskautsráðinu og rannsóknum á náttúru Norðurslóða. Þetta kemur fram á heimasíðu Akureyrar.

Nýjast