Verkmenntaskólinn á Akureyri ásamt stéttarfélögum og aðilum úr atvinnulífinu í nærumhverfi skólans standa að Viku Málm- og véltæknigreina, sem hófst á mánudaginn.
Dagskráin er býsna fjölbreytt, við héldum vel sótt málþing á mánudaginn. Þar áttu sér stað fjörugar umræður um samvinnu atvinnulífs og skóla á vettvangi málm- og véltæknigreina og á sviði tæknináms almennt.Í lok þingsins var stofnað fagráð skóla og atvinnulífs um framgang málm- og véltæknigreina. Fundarmenn voru sammála um að koma verði á tækninámi á háskólastigi á svæðinu, til dæmis á sviði vélaverkfræði eða -tæknifræði og í mekatrónik. Slíkt nám myndi styrkja hátækniiðnað á svæðinu. VMA er þegar farinn að bjóða upp á námsáfanga af þessu tagi og stefnt er að því að tengja mekatrónik námi í raf- og rafeindavirkun og vélstjórn, segir Hjalti Jón Sveinsson skólameistari VMA.
Á laugardaginn verður opið hús á málmsmíðaverkstæði og í vélstjórnardeild VMA í tilefni af 30 ára kennsluafmæli á Eyrarlandsholti.Við finnum fyrir því að áhugi ungs fólks á þessum greinum fer vaxandi, þannig að það er um að gea að kynna sér hvað er í boði, segir Hjalti Jón.
karleskil@vikudagur.is