Vígsla Dalsbrautar og heiðursviðurkenning íþróttaráðs

Unnið að gerð Dalsbrauta
Unnið að gerð Dalsbrauta

Suðurhluti Dalsbrautar á Akureyri verður formlega vígður kl. 16.30 á morgun þegar klippt verður á borða við gangbrautarljósin við Lundarskóla og síðan haldið fylktu liði suður götuna. Fremstar í flokki fara rennireiðar frá Fornbílaklúbbi Akureyrar og eru bæjarbúar hvattir til að fagna þessum nýja áfanga í samgöngubótum bæjarins með því að mæta fótgangandi, á reiðhjólum eða bilfreiðum sínum og fylgja bílalestinni suður undir Miðhúsabraut og aftur til baka að Lundarskóla.

Síðdegis  þennan sama dag verður heiðursviðurkenning íþróttaráðs Akureyrar og Afrekssjóðs Akureyrar veitt við hátíðlega athöfn í Menningarhúsinu Hofi.

Nýjast