Viðurkenningar skólanefndar Akureyrarbæjar

Á morgun boðar skólanefnd Akureyrarbæjar til samkomu í Menningarhúsinu Hofi – Hömrum, þar sem nemendum, kennurum og starfsmönnum við skóla Akureyrarbæjar verður veitt viðurkenning fyrir að hafa skarað fram úr í starfi. Þetta er í fjórða sinn sem skólanefnd stendur fyrir samkomu sem þessari en hún er í samræmi við áherslur í skólastefnu Akureyrarbæjar.

Óskað var eftir tilnefningum frá starfsmönnum, skólum og foreldrum um nemendur og starfsmenn eða verkefni sem talin voru hafa skarað fram úr í skólastarfi.  Valnefnd sem skipuð var fulltrúum frá skólanefnd, samtökum foreldra og Miðstöðvar skólaþróunar HA fór yfir allar tilnefningar og gerði tillögu til skólanefndar sem skólanefnd samþykkti á fundi sínum þann 20. júní.

Verða nöfn þeirra einstaklinga og verkefna sem hljóta viðurkenningu þetta árið kunngjörð á samkomunni, sem hefst klukkan 17:00

Nýjast