Viðurkenning fyrir góðan árangur í matjurtaræktun

Hjónin Hafdís Eygló Jónsdóttir og Sigurbjörn Arngrímsson hlutu sérstaka viðurkenningu fyrir góðan árangur í matjurtaræktun í görðunum sem bærinn úthlutar áhugasömum á vori hverju.

Það var Jóhann Thorarensen umsjónarmaður matjurtagarðanna sem heilsaði upp á hjónin í garðinum þeirra og afhenti þeim blómvönd af þessu tilefni.

Hafdís og Sigurbjörn eru að taka sín fyrstu skref í grænmetisræktun. Þeim hefur gengið ákaflega vel í sumar og eru því, að sögn Jóhanns, mjög vel að þessari viðurkenningu komin.

Nú eru um 320 litlir matjurtagarðar hjá Ræktunarstöð Akureyrarbæjar við Krókeyri sem standa Akureyringum til boða gegn vægu leigugjaldi. Garðarnir eru auglýstir lausir til umsóknar þegar líður á veturinn og yfirleitt fá færri en vilja skika til ræktunar

Nýjast