Deildarfundur Norðausturdeildar Auðhumlu, samvinnufélags mjólkurframleiðenda, var haldinn í Sveinbjarnargerði í liðinni viku.
Á honum voru veittar viðurkenningar til kúabænda í Eyjafirði og Þingeyjarsýslu sem framleiddu úrvalsmjólk á árinu 2012. Alls framleiddu 64 kúabændur á öllu landinu úrvalsmjólk á sl. ári og þar af voru 29 á svæði MS Akureyri.
Kristján Gunnarsson mjólkureftirlitsmaður hjá MS tilkynnti á fundinum að hann hygðist láta af störfum um næstu áramót, eftir áratuga farsæl störf hjá MS Akureyri. Þegar Kristján lætur af störfum mun hann hafa starfað við mjólkureftirlit í rúm 32 ár, og er mál til komið að hvíla bæði ykkur og mig og hleypa nýju blóði að, sagði hann í ávarpi til bænda á fundinum.