Alls sóttu 1100 manns um skólavist við Háskólann á Akureyri næsta haust og hefur fjöldinn aldrei verið meiri. Flestar umsóknirnar eru í viðskiptafræði, hjúkrunarfræði og sálfræði.
Aðsókn í viðskiptafræði hefur verið að aukast jafnt og þétt aftur eftir hrunið og deildin er nú að ná aftur sínum fyrri styrk sem er afar ánægjulegt, segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir markaðs- og kynningarstjóri HA. Við erum mjög ánægð með aðsóknina í skólann og gaman að sjá hvað Háskólinn á Akureyri er búinn að festa sig rækilega í sessi sem einn af fremstu háskólum landsins.