Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í morgun að hefja viðræður við forsvarsmenn Fallorku ehf. um virkjun Glerár og tengdar framkvæmdir. Fallorka, sem er í eigu Norðurorku, hefur undanfarin ár unnið að þeim möguleika að byggja vatnsaflsvirkjun sem myndi nýta vatnsfall frá svæði á móts við sorphauga bæjarins. Fallorka rekur m.a. vatnsaflsvirkjanir við Djúpadalsá í Eyjafjarðarsveit.