Víða ófært

Ekkert ferðaveður er í nágrenni Akureyrar og innanbæjar er færð víða farin að spillast. Á Norðurlandi eystra verður norðlæg átt í dag, 10-15 m/s og snjókoma eða éljanangur. Frost verður á bilinu 6-12 stig.

Ófært er á Þverárfjalli, Siglufjarðarvegi, Héðinsfirði, Ólafsfjarðarmúla, Víkurskarði, Hólasandi og Hófaskarði. Þæfingsfærð og stórhríð er á Öxnadalseiði sem og á Dalvíkur- og Grenivíkurvegi. Hálka eða snjóþekja er á flestum öðrum leiðum og stórhríð.

Nýjast