Við vorum einfaldlega bænheyrð

Tjaldsvæðið að Hömrum /mynd Karl Eskil
Tjaldsvæðið að Hömrum /mynd Karl Eskil

„Klakinn sem huldi opnu svæðin í bænum hvarf að mestu í hlýindunum í vikunni og svæðin virðast almennt líta ágætlega út. Við höfum séð einhverjar skemmdir, eins og gengur og gerist, en það er varla hægt að tala um verulegar kalskemmdir, sem við óttuðumst svo mjög fyrir viku síðan,“ segir Jón Birgir Gunnlaugsson forstöðumaður umhverfismálahjá Akureyrarbæ.

„Við vorum því einfaldlega bænheyrð í þessum efnum, því útlitið var vissulega ekki bjart. Helst vorum við hrædd um tjaldsvæðið á Hömrum, enda um stórt svæði að ræða.“

Sáu klakann bráðna

„Það bjargaðist mikið hérna um helgina, það er þó enn töluverður klaki á svæðinu, enda var hann 10 sentimetra þykkur áður en hlýnaði svona mikið í veðri. Ég get nefnt sem dæmi að fjórar flatir komu undan klakanum í heilu lagi og eru líklega óskemmdar með öllu. Við hreinlega sáum klakann bráðna og það var einstaklega ánægjulegt,“ segirTryggvi Marinósson framkvæmdastjóri Hamra.

 „ Stóra fréttin er engu að síður að asahlákan gerði það að verkum að hérna verður líklega ekki milljóna króna tjón. Í síðustu viku talaði ég um að hugsanlega verði að loka einhverjum svæðum í sumar vegna kals, en staðan er allt önnur og betri í dag.“

karleskil@vikudagur.is

Nýjast