Fimmtudaginn 23. maí birtist áhugavert bréf í Vikudegi til skólanefndar Akureyrar frá fjórum ungmennum í 1. bekk MA þeim Heimi Pálssyni, Helenu Rut Pétursdóttur, Jóni Óskari Andréssyni og Kamillu Dóru Jónsdóttur.
Bréfið ber yfirskriftina ,,Af hverju talar fólk ekki saman? þar sem lýst er áhyggjum af stöðu nemenda við lok grunnskóla og þá sérstaklega í stærðfræði.
Að þeirra mati gætir ósamræmis við val á viðfangsefnum í grunn- og framhaldsskólum og í einhverjum tilvikum sé námsþáttum hreinlega sleppt.
Skólanefnd Akureyrar fagnar því að nemendur í 1. bekk framhaldsskóla láti svo mikilvægt mál sig varða því nefndur vandi er sannarlega til staðar. Þó erfitt sé að fullyrða að þetta eigi allsstaðar við þá skapar það óhjákvæmilega vanda hjá þeim nemendum sem standa í þeim sporum þegar skólagangan í framhaldsskóla hefst.
Í bréfinu er einnig bent á hið augljósa að auðvelt sé fyrir kennara grunn- og framhaldsskóla að ræða saman og stilla saman strengi til skapa samfellu á milli skólastiganna.
Við innleiðingu nýrrar aðalnámskrár sem á að vera lokið í grunnskólunum árið 2014 er m.a. unnið að því að samræma markmið á milli skólastiganna.
Sú vinna er ekki hafin nema að hluta til en það er skylda grunn- og framhaldsskóla að fylgja aðalanámskrá sem á að tryggja samfellu í einstökum greinum. Til þess þurfa kennarar skólastiganna að tala saman.
Um leið og skólanefnd Akureyrar þakkar bréfriturum skrifin vill hún jafnfram bjóða þeim til fundar með nefndinni þann 3. júní n.k. til að ræða þessi mál.
F.h. skólanefndar Akureyrar
Preben Jón Pétursson