„Þetta hafa verið ótrúlega viðburðarík skemmtileg og góð ár sem vissulega hefur verið gríðarlega mikil vinna,“ segja þau Ingibjörg Stella Bjarnadóttir og Erik Jensen, eigendur B. Jensen. Nú standa þau á tímamótum, þar sem þau hafa selt fyrirtækið til Kjarnafæðis Norðlenska, sem er í eigu Kaupfélags Skagfirðinga. Það hefur tekið við rekstri fyrirtækisins: sláturhúsi, kjötvinnslu og versluninni við Lónsbakka, þar sem allur reksturinn hefur alltaf verið til húsa.
„Það hefur verið unnið að þessum um nokkurt skeið – við byrjuðum að ræða þetta síðasta haust. Óvissa skapaðist í kringum búvörulögin sem gerði það að verkum að málið tafðist um stund, en þegar Hæstiréttur staðfesti gildi laganna var ekkert til fyrirstöðu að ganga frá sölunni.“
Þau segja fyrirtækið B. Jensen dýrmætan hluti af fjölskyldusögunni – stofnað af foreldrum Eriks, þeim Benny Albert Jensen og Jónínu Guðjónsdóttur, vorið 1968. „Sumarið 1998 tókum við, Erik og Ingibjörg, við keflinu og höfum haldið utan um reksturinn síðan eða í 27 ár,“ segja þau.
Starfsfólkið okkar – hjarta fyrirtækisins
„Það er ómetanlegt hversu heppin við höfum verið með starfsfólk í gegnum tíðina. Hjá okkur hefur verið lítil starfsmannavelta og við höfum notið þess að vinna með góðu fólki sem er bæði reynslumikið, samviskusamt og metnaðarfullt. Það hefur lagt sig fram við að skila af sér vönduðum vörum og skapa góða stemningu – og án þeirra hefði þetta ferðalag ekki verið það sama.“
Verslunin á Lónsbakka – hjartasláttur samfélagsins
„Verslunin okkar hefur verið okkur sérstaklega kær. Það var alltaf líf og gleði þegar við tókum á móti fólki – spjallað, hlegið og stundum deilt sögum. Þessar samverustundir með góðum og tryggum viðskiptavinum voru okkur ómetanlegar. Að fá að vera hluti af daglegu lífi ykkar í öll þessi ár er heiður sem við tökum með okkur inn í næsta kafla.“
Tímamót og þakklæti
„Nú er komið að því að láta staðar numið. Reksturinn hefur alltaf krafist mikillar vinnu og við finnum að nú er rétti tíminn til að horfa fram á við og gefa okkur rými til nýrra ævintýra. Við förum inn í næsta kafla með miklu þakklæti – til starfsfólks, viðskiptavina og allra sem hafa stutt okkur á leiðinni. Þið hafið gert þessi ár ógleymanleg,“ segja þau og bæta við: „Takk fyrir okkur – af öllu hjarta.“