"Akureyri og Eyjafjarðarsvæðið er láglaunasvæði, samanborið við höfuðborgarsvæðið og hefur þessi staða verið nokkuð lengi við lýði. Akureyrarbær er lang stærsti vinnuveitandinn í sveitarfélaginu og hlýtur þar með að leiða launaþróun á svæðinu. Þannig á bærinn að stuðla að hækkun launa á svæðinu samhliða því að byggja upp sanngjarnt kerfi sem metur starfsfólk að verðleikum.," skrifa frambjóðendur Vinstri grænna á Akureyri.
"Þetta viljum við í VG gera með því að breyta skipulagi fjármála bæjarins. Við viljum hækka grunnlaun bæjarstarfsmanna sem hafa tekjur undir meðallaunum á almennum markaði. Þar er um að ræða einhliða aðgerð sveitarfélagsins, þar sem allir starfsmenn bæjarins með grunnlaun undir meðaltali launa á almennum vinnumarkaði árið 2014 fá allt að 10% hækkun grunnlauna umfram það sem næst í kjarasamningum eða er að finna í gildandi slíkum."