Við virðumst ætla að fara ágætlega í gegnum veturinn, segir Heimir Kristinsson varaformaður Byggiðn, félag byggingamanna, um verkefnastöðu í byggingaiðnaði á Akureyri. Fyrstu þrír mánuðir ársins eru jafnan þeir erfiðustu og við höfðum áhyggjur af vetrinum. En þetta hefur gengið vonum framar. Atvinnuleysi í greininni hefur ekki aukist, sem er ákveðið batamerki. Stærri fyrirtæki hafa verið dugleg við að búa sér til verkefni en það er minna að gera hjá smærri verktökum.
Bærinn að hverfa af markaði
Hins vegar er áhyggjuefni að stærri verkefni eru að klárast og Akur eyrarbær virðist vera að hverfa af markaðnum. Bærinn hefur haldið verkefnastöðunni meira en minna gangandi frá hruni, en ég veit ekki til þess að stór verkefni séu framundan, segir Heimir.