Vetrarveður

Kort Vegagerðarinnar í morgun
Kort Vegagerðarinnar í morgun

Snjóþekja er á flestum leiðum fyrir norðan enda víða éljagangur og skafrenningur. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Mývatnöræfum en þungfært er á Hólasandi.Veðurstofna gerir ráð fyrir norðlægri átt á Norðurlandi eystra í dag, 10-15 m/sek, snjókomu eða éljagangi. Í kvöld 15-23 m/sek, en lægja á í nótt.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag: Hvöss norðaustanátt og snjókoma í fyrstu á Vestfjörðum. Annars talsvert hægari vindur og stöku él, en bjartviðri SV-lands. Áfram kalt í veðri. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum norðanlands.
Á fimmtudag: Norðaustan 5-13 m/s, hvassast vi SA-ströndina. Allvíða dálítil él, en bjart að mestu S- og V-lands. Yfirleitt vægt frost en frostlaust með ströndinni.
Á  föstudag,  laugardag og  sunnudag: Austlæg átt, lengst af 3-8 m/s, en hvassari við SA-ströndina og á annesjum N-til. Él SA- og A-lands, annars úrkomulítið og bjart á köflum. Hiti um frostmark NA-lands annars 0 til 5 stig yfir daginn.
Á mánudag: Útlit fyrir hæga breytilega átt og víða bjartviðri, en austanátt og él SA-til. Hiti breytist lítið

Nýjast