Davíð Rúnar Gunnarsson og Pétur Guðjónsson hjá Viðburðastofu Norðurlands standa fyrir risamóti sem fram fer í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar í byrjun mars, Iceland Winter Games. Um er að ræða vetrarleika þar sem keppt verður í ýmsum greinum en þó ber helst að nefna free skiing og snjóbretti. Þetta verður mót á heimsmælikvarða og við ætlum að fylla bæinn af ferðafólki, segir Davíð Rúnar en von er á 100 erlendum keppendum á mótið víðs vegar úr heiminum.
Kolféllu fyrir Hlíðarfjalli
Tveir Norðmenn komu hingað í sumar til að kanna aðstæður og sjá hvort þetta væri gerlegt. Þeir kolféllu fyrir Hlíðarfjalli en svæðið virðist henta mjög vel fyrir svona mót."
Nánar er rætt um leikana í prentútgáfu Vikudags