Vetrarleikar á heimsmælikvarða

Davíð Rúnar Gunnarsson og Pétur Guðjónsson hjá Viðburðastofu Norðurlands standa fyrir risamóti sem fram fer í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar í byrjun mars, Iceland Winter Games. Um er að ræða vetrarleika þar sem keppt verður í ýmsum greinum en þó ber helst að nefna „free skiing“ og snjóbretti. „Þetta verður mót á heimsmælikvarða og við ætlum að fylla bæinn af ferðafólki,“ segir Davíð Rúnar en von er á 100 erlendum keppendum á mótið víðs vegar úr heiminum.

Kolféllu fyrir Hlíðarfjalli

„Tveir Norðmenn komu hingað í sumar til að kanna aðstæður og sjá hvort þetta væri gerlegt. Þeir kolféllu fyrir Hlíðarfjalli en svæðið virðist henta mjög vel fyrir svona mót."

 

Nánar er rætt um leikana í prentútgáfu Vikudags

Nýjast