Vetrardagskrá Leikfélags Akueyrar kynnt

Leikfélag Akureyrar kynnti í vikunni dagskrá næsta vetrar fyrir félagsmönnum. Árið 1973 varð Leikfélag Akureyrar atvinnuleikhús og mun félagið halda upp á þessi tímamót með ýmsum hætti á komandi leikári.
 
Sýningar:
Sek, nýtt leikverk eftir Hrafnhildi Hagalín í leikstjórn Ingibjargar Huldar Haraldsdóttur. Sýnt í Samkomuhúsinu. Hrafnhildur Hagalín er eitt af okkar fremstu leikskáldum og semur hér verk um ástarþríhyrning sem kemur fyrir í dómsmáli á 19. öld  á Melrakkasléttu. Hrafnhildur notar texta úr dómskjölum sem efnivið í sýningu sem verður í senn myndræn og grípandi. Ingibjörg Huld Haraldsdóttir útskrifaðist vorið 2011 úr Fræði og framkvæmd við Listaháskóla Íslands. Hún tók sín fyrstu skref sem leikstjóri í útskriftarverkefni sínu Spuni eða Kamelljón fjárhirðisins eftir Eugene Ionesco. Ingibjörg leikstýrði Ég er vindurinn eftir Jon Fosse í Þjóðleikhúskjallaranum 2012. 
 
Gullna hliðið eftir Davíð Stefánsson í leikstjórn Egils Heiðars Antons Pálssonar. Sýnt í Samkomuhúsinu. Gullna hliðið er afmælissýning Leikfélags Akureyrar. Egill Heiðar leikstýrði Leigumorðingjanum hjá LA s.l haust og var tilnefndur til Menningarverðlauna DV m.a fyrir þá uppsetningu. 
 
Trommari óskast eftir Richard Maxwell í leikstjórn Ragnheiðar Skúladóttur. Verkið sem fjallar um samband mæðgina á gamansaman hátt verður sett upp í Rýminu í september. Richard Maxwell er einn af helstu samtímaleikhúsmönnum í Bandarísku leikhúsi. Hann hefur hlotið mikla athygli fyrir verk sín sem hann leikstýrir gjarnan sjálfur og semur tónlistina við. Maxwell er stofnandi leikhópsins New York City Players. Ben Brantley, aðal leikhúsgagnrýnandi New York Times valdi sýningu Maxwells Neutral Hero sem eina af tíu markverðustu uppfærslunum í New York 2012.
 
Jón Gunnar Þórðarson setur upp nýtt írskt verðlaunaverk í leikstjórn í Rýminu. Jón Gunnar útskrifaðist með BA gráðu í leikstjórn frá Drama Centre London árið 2006. Eftir það hefur hann leikstýrt leiksýningum í atvinnuleikhúsum á Íslandi, Englandi og Finnlandi. Hann hefur einnig unnið sem aðtoðarleikstjóri í The Royal Shakespeare Company og hjá Vesturporti. Jón Gunnar hefur haldið námskeið og leikstýrt í menntaskólum og stjórnað Götuleikhúsinu í Reykjavík.
 
Nýtt leikverk eftir Árna Kristjánsson í samstarfi við Útvarpsleikhúsið. Verkið verður flutt í Útvarpsleikhúsinu og sem hljóðverk í Davíðshúsi í samvinnu við Minjasafnið á Akureyri.  Sögusvið leikritsins er að mestu leyti heimili Davíðs, Davíðshús, og segir frá honum sjálfum eitt vetrarkvöld þar sem óvænta gesti ber að garði. Árni Kristjánsson hefur unnið að þessu verki í nokkurn tíma, meðal annars í sameiginlega vinnustofu LA og Minjasafnsins fyrr í vetur.
 
Vinnustofur:
 
Sam Haren, leikstjóri og höfundur kemur til okkar frá Ástralíu til vinnustofudvalar auk þess að vinna með nemendum leiklistarskólans.
 
Poste Restante, einn af framsæknustu leikhópum Svía kemur frá Stokkhólmi og dvelur í vinnustofu.
 
Nánar verður greint frá gestasýningum, starfsemi Leiklistarskóla LA og vinnustofum ásamt annarri starfsemi í ársbæklingnum þegar hann kemur út í ágúst.
 
 

Nýjast