Veður fer versnandi á Norðurlandi og víða er ekkert ferðaveður. Þæfingur og stórhríð er á Öxnadalsheiði og snjóþekja og stórhríð er í Víkurskarði. Á Eyjafjarðarsvæðinu er hálka og snjókoma en austan við Víkurskarð er hálka, snjóþekja og éljagangur. Á vef Veðurstofunnar segir að búast megi við vaxandi vindi og ofankoma austanlands í kvöld, en dregur heldur úr vindi og ofankomu vestantil á landinu.