Aðildarfélög Alþýðusambands Íslands hafa hrundið af stað átaki í verðlagsmálum undir yfirskriftinni. Vertu á verði. Markmið átaksins er að draga úr verðbólgu og tryggja þannig aukinn kaupmátt.
ASÍ mun á næstu dögum halda fundi víðs vegar um landið og kynna átakið, auk annarra mála stefnumála sambandsins. Fyrsti fundurinn var haldinn á þriðjudaginn á Akureyri í menningarhúsinu Hofi.
Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ sagði að markmiðið væri efla aðhald með verslunum og þjónustuaðilum með auknu verðlagseftirliti. Einnig að veita hinu opinbera aukið aðhald með úttektum og greinarskrifum og síðast en ekki síst að virkja almenning til þátttöku. Hann sagði á fundinum í Hofi mikilvægt að ná samstöðu um stefnu og aðgerðir á sviði gengis- og peningamála á næstu mánuðum.