Veltan á fasteignamarkaði 803 milljónir

Arnar Guðmundsson
Arnar Guðmundsson

Janúar var nokkuð líflegur á fasteignamarkaðnum á Akureyri. Alls var þinglýst 38 samningum, þar af voru 27 samningar um eignir í fjölbýli, sjö samningar um eignir í sérbýli og fjórir samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 803 milljónir króna og meðalupphæð á samning 21,1 milljón króna. Arnar Guðmundsson fasteignasali hjá Fasteignasölu Akureyrar segir að árið hafi byrjað vel. Mikið hafi verið að gera og greinilegt sé að margir séu í fasteignahugleiðingum.

Nýjast