Velferð og sjálfstæði

Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt  fram raunhæfar tillögur fyrir kjósendur til að lækka skuldir  hvers einstaklings sem hefur tekið verðtryggt lán til húsnæðiskaupa.
Þær tillögur miðast við þá fjárhæð sem lántakendur greiða mánaðarlega af húsnæðislánum sínum, en eru ekki tengdar tekjum. 
Lántaki sem greiðir 100.000 krónur af láni sínu mánaðarlega fær  40.000 króna skattaafslátt sem leggst inn á höfuðstól láns hans.  Greiði lántaki  50.000 kr. á mánuði er skattaafslátturinn 20.000 kr. á mánuði.
Við hverja greiðslu lækkar höfuðstóllinn og þar með afborgunin og lækkar svo verulega eftir því sem höfuðstóllinn lækkar.  Meðallán mun lækka um allt að 20% á 4-5 árum.
Þessi leið er ábyrg og fær fyrir ríkissjóð. Hún eykur ráðstöfunartekjur  lántaka jafnt og þétt, sem síðan skilar sér inn í efnahagskerfið með aukinni veltu. Þessar tillögur koma þeim sem eru með lægri og meðaltekjur best.

Áfnám skerðingar ellilífeyris og örorkubóta
Sjálfstæðisflokkurinn mun afnema skerðingu á ellilífeyri og örorkubótum og bótum almannatrygginga og hækka þær að nýju.  Þær skerðingar sem hafa átt sér stað á undanförum 4 árum nema um 13 milljörðum króna. 
Núverandi ráðstöfunartekjur 75% öryrkja nema alls 131.000 á mánuði. Það segir sig sjálft að það er afar erfitt að láta enda ná saman,  að ekki sé minnst á að veita sér örlitla ánægju, hjá þeim hópi.  Staða  aldraðra verður bætt og dregið úr tekjutengingu sem mun gera fólki  yfir 70 ára aldri kleift að afla sér tekna án skerðinga. Þá þarf að tryggja að aldraðir á dvalarheimilum haldi sínu fjárhagslega sjálfstæði.  Þannig verður mismunun sem birst hefur í aðgerðum stjórnvalda undanfarin ár gagnvart þessu fólki aftur eytt.

Jöfnun húshitunarkostnaðar landsmanna

Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á að húshitunarkostnaður landsmanna verði jafnaður.  Á svonefndum köldum svæðum þar sem hús eru kynt með rafmagni, er raforkureikingur allt að 50.000 kr.  á mánuði,  sem er ríflega helmingi hærri en rafmagns-  og hitaveitureikningur á svæðum þar sem hitaveita er. 

Landsmenn sem búa á köldum svæðum eru til muna færri en þeir sem búa á heitum svæðum eða 30.000 manns af 320.000 Íslendingum.  Það er öllu auðveldara að jafna þennan kostnað sem því nemur.

Sjálfstæðisflokkurinn stendur vörð um velferð fólks, hvar í stétt sem það stendur.

Valgerður Gunnarsdóttir, skólameistari og formaður Skólameistarafélags Íslands skipar 2. sæti hjá Sjálfstæðisflokknun í Norðausturkjördæmi.

 

Nýjast