Í gærkveldi fóru fram í Akureyrarkirkju tónleikar til styrktar fjölskyldu Halls Heimirssonar, sem berst við alvarlegan sjúkdóm. Opnaður hefur verið styrktarreikningur, sem er á nafni eiginkonu Halls, Sigríðar Benjamínsdóttur.
Alls voru á fimmta hundrað manns i kirkjunni, margir landfrægir tónlistarmenn og konur stigu á stokk. Meðal annars Jón Sig., Pálmi Gunnarsson,Óskar Pétursson, Eyþór Ingi Jónsson,Elvý Hreinsdóttir, Hymnódia og Hjalti og Lára Sóley. Kynnir var Bjarni Hafþór Helgason.
Söfnunarreikningurinn í Íslandsbanka er þessi:
Reikningsnúmer 565-14-403903
Kennitala 050961-3469