Vel heppnuð hópslysaæfing á Akureyrarflugvelli í dag

Um fjögur hundruð manns tóku þátt í flugslysaæfingu sem haldin var á Akureyrarflugvelli í dag. Æfðar voru björgunar- og slökkviaðgerðir, greining og aðhlynning slasaðra auk umönnunar óslasaðra og aðstandenda. Sérstök áhersla var lögð á samhæfingu vegna flutnings á slösuðum, boðunarkerfi, stjórn, samhæfingu, fjarskipti, rannsókn á vettvangi og fleira.

Margar starfseiningar tóku þátt í æfingunni, starfsfólk Isavia á Akureyrarflugvelli, lögregla, slökkvilið, sjúkraflutningaaðilar, Landhelgisgæslan, starfsfólk fjórðungssjúkrahússins, björgunarsveitir, almannavarnir, Rauði krossinn, prestar, flugfélög og rannsóknaraðilar auk annarra og hefur undirbúningur staðið um nokkurra mánaða skeið.

 

Nýjast