Vegabréfaleikur N1 hafinn

Eins og undanfarin sumur verður N1 með vegabréfaleikinn í boði  á  þjónustustöðvum sínum um allt land. Vegabréfaleikurinn hefst formlega í dag, 31. maí og stendur til 16. ágúst.

 Leikurinn gengur út á það að safna stimplum í N1 vegabréfið í hvert skipti sem verslað er fyrir 300 kr. eða meira á þjónustustöðvum N1. Safna þarf átta stimplum og við hverja stimplun fær handhafi vegabréfsins glaðning. Þegar öllum átta stimplunum hefur verið safnað er vegabréfinu skilað inn á næstu þjónustustöð N1 og fer þar í pott sem dregið verður úr um miðjan ágúst. Fjöldi  glæsilegra vinninga verður í boði. Aðalvinningurinn í ár er ferð fyrir fjölskylduna (2 fullorðnir og 2 börn) til Tenerife í viku í vetur að verðmæti allt að 680.000 kr.

 

Í vegabréfinu 2013 er lögð meiri áhersla á afþreyingu og fræðslu og með það að markmiði að auka skemmtun í ferðalaginu. Þar er að finna dæmi um áhugaverða staði og skemmtilegar sögur um landið. Hægt er að nálgast vegabréf á næstu þjónustustöð N1.

Nýjast