Veðurspá vikunnar

Amtsbókasafnið á Akureyri í morgun/mynd Karl Eskil
Amtsbókasafnið á Akureyri í morgun/mynd Karl Eskil

Í dag verður hæg austlæg átt á Norðurlandi eystra, eða norðlaustlæg, él eða slydduél, en um frostmark við ströndina.
 

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag:
Norðaustan 5-13 m/s og dálítil él N- og A-lands, en léttskýjað S- og V-til. Frost 0 til 7 stig, kaldast inn til landsins NV-lands.

Á miðvikudag:
Hæg norðlæg eða breytileg átt. Smá él við N- og A-ströndina en léttskýjað syðra. Frost 1 til 7 stig. Vaxandi SA-átt við suðvesturströndina um kvöldið með snjókomu vestast.

Á fimmtudag:
Gengur í vestan 8- 15 m/s V-til, en SA-átt austantil fram á kvöld. Snjókoma um landið V-vert, slydda suðaustantil, en lengst af úrkomulítið á Norðausturlandi. Hægari breytileg átt um kvöldið og dregur úr ofankomu V-til. Hiti breytist lítið.

Á föstudag:
Útlit fyrir norðaustlæga eða breytilega átt, en ákveðinni austanátt A-til síðdegis. Snjókoma um landið austanvert eftir hádegi en stöku éljum vestast. Fremur kalt í veðri, einkum inn til landsins.

Á laugardag:
Austlæg átt og ringing eða slydda SA-til, en NV-læg átt og smá él vestast. Dregur úr frosti.

Á sunnudag:
Útlit fyrir A- og NA-átt með éljum A-lands og við N-ströndina, en annars yfirleitt þurrt. Frost um mest allt land.

Nýjast