Veðurspá Dalbæjar fyrir mars

Frá Dalvík
Frá Dalvík

Fundur var haldinn í Veðurklúbbi Dalbæjar á Dalvík í gær.

Farið var yfir veðurfar í febrúar og voru klúbbfélagar mjög svo sáttir við hvernig spáin gekk eftir.

„Nýtt tungl kviknaði þann 1. mars í austri og síðara tungl  í mars mun kvikna þann 30. í vestri. Fyrra tunglið er laugardagstungl og það síðara sunnudagstungl og boðar það gott.

Veðurfar í mars verður milt, svipað og í febrúar. Þar sem dagfer að lengja, má búast við sólarglennum af og til í mars. Þremur draumum klúbbfélaga ber saman um að veður í marsmánuði verður milt,“ segir í tilkynningu.

Nýjast