Veðurklúbburinn á Dalvík bjartsýnn á veðrið í sumar

Frá Dalvík
Frá Dalvík

 Fundur var haldinn í Veðurklúbbi Dalbæjar i gær. Fundarmenn voru mjög ánægðir með hvernig til tókst með veðurspá síðasta mánaðar.

Tungl kviknar 10. apríl n.k. í SA kl. 09:35 og er það fyrsta sumartungl. Áttir verða því að mestu suð – og austlægar, segir í tilkynningu frá klúbbnum.  

Einn veðurspámaður gerir ráð fyrirhlýindakafla eftir 10. apríl,  sem minni verulega á sumarið hvað hitasig snertir.

Meðlimir Veðurklúbbsins á Dalbæ er almennt bjartsýnir á veðurfar sumarsins.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast