Fundur var haldinn í Veðurklúbbi Dalbæjar i gær. Fundarmenn voru mjög ánægðir með hvernig til tókst með veðurspá síðasta mánaðar.
Tungl kviknar 10. apríl n.k. í SA kl. 09:35 og er það fyrsta sumartungl. Áttir verða því að mestu suð og austlægar, segir í tilkynningu frá klúbbnum.
Einn veðurspámaður gerir ráð fyrirhlýindakafla eftir 10. apríl, sem minni verulega á sumarið hvað hitasig snertir.
Meðlimir Veðurklúbbsins á Dalbæ er almennt bjartsýnir á veðurfar sumarsins.