Veðurklúbburinn á Dalbæ spáir góðu sumri

Frá Dalvík/mynd Margrét Víkingsdóttir
Frá Dalvík/mynd Margrét Víkingsdóttir

Veðurklúbburinn á dvalarheimilinu Dalbæ á Dalvík sendi í morgun frá sér veðurspá fyrir maí. Fundarmenn voru ekki sáttir við spána fyrir apríl, enda gekk hún ekki eftir. 

„Spámenn eru á því að veður í maí verði fremur margbreytilegt, en allar líkur eru á að tíð fari að batna verulega upp úr hvítasunnu, enda kominn 20. maí og ekki seinna vænna að það fari að vora almennilega,“ segir í tilkynningu frá klúbbnum.

„Gert er ráð fyrir góðu sumri þegar það loksins kemur, segir ennfremur.

 

karleskil@vikudagur.is

Nýjast