Veðurklúbburinn á Dalbæ í Dalvíkurbyggð hefur sent frá sér veðurspá sína fyrir desember.
Spáin er svohljóðandi:
Tungl kviknar þann 13. des. 2012 kl. 08:42 jólin eru því í vaxandi tungli, sem þykir boða gott árferði. Látið er fylgja vísukorn þessu til áréttingar.
Hátíð jóla hygg þú að,
hljóðar gamall texti.
Ársins gróða þýðir það,
ef þá er tungl í vexti
Fundarmenn ætla að veðurfar verði með ágætum í desember, þó svo að það verði smávægilegar umhleypingar. Ekki er reiknað með mikilli úrkomu þó svo að slíti úr honum annað veifið. Tungl er vaxandi til 28. Desember, segir í tilkynningu frá klúbbnum.