Varamanni í stjórn Stapa vikið frá störfum

Fjármálaeftirlitið hefur vikið Sigurði Jóhannessyni einhliða frá störfum sem stjórnarmanni Stapa lífeyrissjóðs á grundvelli heimildar í 4. mgr. 10. gr. laga nr. 87/1998 um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.

Stjórn Fjármálaeftirlitsins tók hinn 3. október 2012 ákvörðun um að Sigurður teldist ekki uppfylla hæfisskilyrði 4. mgr. 31. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu og starfsemi lífeyrissjóða og gerði kröfu um að hann léti af störfum sem stjórnarmaður Stapa lífeyrissjóðs innan tveggja vikna frá því að ákvörðunin barst honum, að öðrum kosti myndi stofnunin víkja honum einhliða frá störfum. Hinn 6. desember 2012, rúmum sjö vikum eftir að ákvörðun Fjármálaeftirlitsins barst honum, hafði Sigurður ekki enn orðið við kröfu stjórnar stofnunarinnar um að láta af störfum og af þeim sökum vék Fjármálaeftirlitið honum frá, segir í tilkynningu frá Fjármálaeftirliti.Sigurður er í vatastjórn Stapa

Nýjast