Varað við breytingum á sýslu- mannsembættinu á Húsavík

Framsýn- stéttarfélag varar við boðuðum breytingum á sýslumannsembættinu á Húsavík. Samkvæmt fyrirliggjandi tillögum stendur til að sameina sýslumannsembættin á Norðurlandi, þó þannig að embættin verði tvö. Annars vegar Sýslumaðurinn á Norðurlandi og hins vegar Lögreglustjórinn á Norðurlandi.  

Framsýn óttast að við þessar breytingar muni stöðugildum fækka hjá embættinu á Húsavík og þjónusta við íbúa svæðisins skerðast. Því miður hefur opinberum störfum á Húsavík fækkað á síðustu árum. Framsýn telur mikilvægt að horft verði til þess þegar endurskipulagning á nýju embættunum fer fram með það að leiðarljósi að störfum verði fjölgað á Húsavík. Mikill mannauður er til staðar hjá sýslumannsembættinu á Húsavík sem mikilvægt er að nýta til góðra verka hjá nýjum embættum. Auk þess sem um er að ræða mjög verðmæt störf fyrir svæðið.

Þá varar félagið einnig við niðurskurði á fjármunum til löggæslu í Þingeyjarsýslum.  Niðurskurðurinn er þegar farinn að koma niður á öryggi íbúanna á svæðinu sem er grafalvarlegt mál. Framsýn hvetur dómsmálaráðherra til að tryggja nægjanlegt fjármagn til löggæslu á svæðinu. Jafnframt að stöðugildi lögregluþjóna verði með ásættanlegum hætti fyrir íbúana og allan þann fjölda ferðamanna sem heimsækja Þingeyjarsýslurnar á hverju ári. Við annað verður ekki unað, segir í ályktun Framsýnar.

Nýjast