Var eini strákurinn í bekknum

„Ég byrjaði að vinna á leikskóla árið 1997 á Stekk hér á Akureyri. Mér fannst það strax mjög gaman og þar kviknaði áhuginn. Ég er búinn að vinna sem sjómaður, bílstjóri, í kjötiðnaði og í frystihúsi en þetta er það lang skemmtilegasta sem ég hef gert,“ segir Þorvaldur Þorvaldsson, leikskólakennari á Lundarseli á Akureyri. Þar hefur hann umsjón með krökkum á aldrinum 5-6 ára. Þorvaldur hafði nýlokið við að koma krökkunum í útifötin þegar hann gaf sér tíma til að ræða við blaðamann Vikudags og það leyndi sér ekki að þarna fer maður sem hefur gaman af því sem hann er að gera.

„Það sem nefnt hefur verið barnaheimspeki hefur talsverð áhrif á starfsemi okkar. Við veltum svolítið fyrir okkur þessum bláa strákaheimi og bleika stelpuheimi. Það að stelpur leiki sér með bíla eða strákar með dúkkur á ekki að skipta neinu máli. Við aðhyllumst jafnréttisstefnu og kennum krökkunum að það eiga allir rétt á að gera það sem þá langar til.“

Ertu stundum kallaður pabbi á leikskólanum?

„Já, það kemur fyrir að krakkarnir missa það út úr sér og það finnst mér bara krúttlegt.“

Er að verða algengara að karlmenn vinni á leikskólum?

„Já, við erum reyndar ekki margir karlmennirnir sem höfum útskrifast sem leikskólakennarar og það er eitthvað sem þarf að bæta. Ég held að ástæðan sé ekki hræðsla við að þetta sé kvenmannsstarf, frekar að það sé launatengt því leikskólakennarar eru ekki hálaunastétt. En það hefur færst í vöxt að strákar vinni sem leiðbeinendur hérna á Akureyri.“

Viðtalið við Þorvald í heild sinni má nálgast í prentútgáfu Vikudags.

throstur@vikudagur.is

Nýjast