Ferðaþjónusta hefur alltaf vakið áhuga hjá mér og svo er æskuheimili mitt mér mjög kært, segir Valgerður Sverrisdóttir fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, en hún hefur ásamt eiginmanni sínum Arvid Kro hafið ferðaþjónustu á Lómatjörn í Grýtubakkahreppi. Í húsi sem byggt var árið 1924 og endurbætt árið 1932.
Gaman að fegra gamla hluti
Húsið er í góðu standi, en að sjálfsögðu þurfi að mála og setja ný gólfefni hér og þar. Þá komum við fyrir sturtum og fleiri snyrtingum en það settum við upp í mjaltavélaklefa sem hér var, segir Valgerður. Kýr hafa ekki verið á Lómatjörn frá árinu 1972. Þá var einnig settur niður heitur pottur norðan við húsið, á stað sem liggur vel við útgangi úr gamla mjólkurhúsinu.
Ég hef alveg óskaplega gaman af því að mála og fegra það sem gamalt er og það má segja að ég hafi í allan vetur verið að mála en Arvid hefur svo unnið við endurbætur á húsinu frá því um páska, segir Valgerður