Valgeir Bergmann Magnússon ráðinn framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga

„Þetta starf leggst  mjög vel í mig, gerð Vaðlaheiðarganga er ögrandi og jafnframt spennandi verkefni og ég hlakka til að taka þátt í því,“ segir Valgeir Bergmann Magnússon  byggingatæknifræðingur, sem ráðinn hefur verið framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga. Alls sóttu 36 um stöðuna.

„Ég hef undanfarin tvö ár starfað við jarðgangagerð hjá Ístaki í Noregi. Hérna á Íslandi hef ég sömuleiðis komið að gerð jarðganga, var verkefnastjóri hjá  Háfelli, sem vann að gerð Héðinsfjarðarganga.  Jarðgangagerð er spennandi verkefni og í mínu starfi þarf að hafa nána samvinnu við fjölda fólks. Heimamenn hafa lengi barist fyrir Vaðlaheiðargöngum, hlutverk mitt er að vinna að því að láta þetta mikla samgöngumannvirki verða að veruleika.“

karleskil@vikudagur.is

Nýjast