Vaðlaheiðargöng orðin 2,5 metra löng

Vaðlaheiðargöng í gær/mynd Valg.Bergmann
Vaðlaheiðargöng í gær/mynd Valg.Bergmann

Fyrsta dínamíthleðslan í Vaðlaheiðargöngum var sprengd á fimmtudagskvöld og í gær var haldið áfram að sprengja inn í bergið. Göngin verða 7,5 kílómetra löng með vegskálum. Síðdegis í gær var búið að sprengja 2,5 metra inn í bergið, en fyrstu hleðslurnar eru ekki öflugar. Þegar komið verður innar í heiðina verða hleðslurnar öflugri.

 Það verður í mörg horn að líta við gangagerðina þegar framkvæmdir verða komnar í fullan gang í sumar. Þrjár vaktir verða settar upp til að sprengja göngin sjálf, unnið verður allan sólarhringinn á tveimur tólf tíma vöktum.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast