Vaðlaheiðargöng lengdust um 70 metra í síðustu viku og er lengd ganganna þar með 1.682 metrar. Vinnan við gerð ganganna gengur því afar vel, því í vikunni á undan var sett met, þá lengdust göngin um 90 metra. Í fyrstu vinnuviku lengdust göngin um 65 metra. Meðfylgjandi mynd tók Valgeir Bergmann