Vaðlaheiðargöng lengdust í síðustu viku um 57 metra, þrátt fyrir að aðeins hafi verið unnið í sex daga. Göngin eru nú 1.257 metrar að lengd, sem er um 17,5 % af heildarlengdinni.
Sex nemendur í 2. bekk í matreiðslunámi í VMA voru í síðustu viku í námsferð í verknámsskóla í Móstoles í útjaðri Madríd á Spáni. Ferðin var styrkt af Erasmus+ styrkjaáætlun ESB og einnig styrktu hana Klúbbur matreiðslumeistara á Norðurlandi og Kjarnafæði-Norðlenska. Með í för voru kennararnir Ari Hallgrímsson og Harpa Friðriksdóttir, Unnur Ása Atladóttir sviðsstjóri iðn- og starfsnáms í VMA og matreiðslumeistarinn Einar Gauti Helgason á Vitanum mathúsi á Akureyri.
Hlynur Jóhannsson, íþróttakennari, bæjarfulltrúi og rekstrarstjóri, leiðir lista Miðflokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum. Inga Dís Sigurðardóttir, náms- og starfsráðgjafi er í öðrui sæti. Þau tvö skipuðu einmitt þessi sömu sæti við sveitarstjórnarkosningarnar fyrir tæpum fjórum árum
Egill Einarsson, verslunarmaður skipar þriðja sæti, Katrín Vilhjálmsdóttir, snyrtifræðingur og sjúkraliði það fjórða. Hannes Karlsson, framkvæmdastjóri er í fimmta sæti og í þvi sjötta Sigurbjörg Níelsdóttir, skrifstofustjóri.
Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum var haldið í Laugardalshöll nýverið og komu fulltrúar frá Ungmennafélagi Akureyrar heim með með tvö gull og þrjú brons.
Unnur segir verðlaunin hafa gríðarlega þýðingu fyrir fjölskyldufyrirtækið og sé staðfesting á því að það borgi sig búa sér til sína eigin gæðastaðla og halda sig við þá.
Á undanförnum árum hefur vart liðið sá dagur í mínu lífi að ég setji ekki niður einhverjar hugleiðingar um sögu sjómanna, sögu útgerðar og nauðsyn þess að varðveita þessu merku sögu í mannkynssögu okkar Akureyringa.
„ Ég er þakklát fyrir traust Sjálfstæðisfólks í Norðurþingi til að leiða lista flokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum í Norðurþingi og ég hlakka til samstarfsins við þennan öfluga hóp sem skipar listann...
Sjúkrahúsið á Akureyri (SAK) gegnir lykilhlutverki í heilbrigðisþjónustu Norðurlands. Innan vébanda þess starfar Kristnesspítali, sem um áratugaskeið hefur verið hornsteinn sérhæfðrar endurhæfingar í landshlutanum. Þar hefur skapast þekking og samfella í faglegu umhverfi sem skiptir sköpum fyrir einstaklinga sem þurfa á markvissri endurhæfingu að halda svo þeir geti aftur orðið virkir einstaklingar í samfélaginu.