Við bíðum bara eftir endanlegum samningi um verkið og á meðan getum við ekki gengið formlega frá kaupum á jarðgangaborum og öðrum nauðsynlegum tækjum. Strax og samningur hefur verið undirritaður hefst okkar undirbúningur fyrir alvöru, segir Sigurður Sigurðsson framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs ÍAV.
Fyrirtækið átti lægsta tilboð í gerð Vaðlaheiðarganga ásamt svissneska fyrirtækinu Matri, tilboðið hljóðaði upp á 8,8 milljarða króna. Líklega hækkar sú tala eitthvað, þar sem tilboðið er orðið eins árs gamalt. Ríkisábyrgðasjóður er að fara yfir lánasamning milli ríkissjóðs og Greiðar leiðar ehf og þaðan fer samningurinn síðan til fjármálaráðherra. Þegar undirskrift ráðherra liggur fyrir, er hægt að ganga frá samningi við ÍAV og Matri.
Áður en hefðbundin gangaborun hefst, þarf að koma upp aðstöðu á svæðinu og svo framvegis. Allt tekurþetta sinn tíma, segir Sigurður.
Hann segir því ómögulegt að segja til hvenær formleg jarðgangagerð hefst, auk þess sem mjög óhentugt sé að byrja á slíku verki á þessum árstíma. Já, þessi tími er almennt ekki talinn góður, þar sem allra veðra er von. Þannig að úr því sem komið er, er líklegast að sjálf jarðgangagerðin hefjist næsta vor.
karleskil@vikudagur.is