Alls bárust 403 tillögur frá bæjarbúum í tengslum við sérstakt umhverfisátak sem bæjarstjórn Akureyrar veitir hálfan milljarð króna í næstu fimm árin.
Meðal hugmynda má nefna fjölskyldugarð og veitingastað í Kjarnaskógi, bætt leiksvæði bæjarins, afgirt hundasvæði, aukinn gróður norðan Glerár, umhverfisátak á Oddeyrinni, gosbrunn á Eiðsvöllinn, sleðabrekku í Skátagilið, útsýnispall á þaki Hofs, hljóðmön við Hlíðarfjallsveg, úrbætur við Lækjargötu og bættar hjólreiðaslóðir. Framkvæmdaráð bæjarins mun taka ákvörðun þann 12. apríl um hvaða verkefni verði ráðist í.
throstur@vikudagur.is