Sportferðir í samstarfi við Reykjavík Helicopters bjóða upp á útsýnisflug á Norðulandi í sumar. Flogið verður frá flötinni við Drottningarbraut og frá Akureyrarflugvelli og hefst verkefnið með þátttöku í Flughelgi á Akureyri í dag, laugardag. Meðal annars verður boðið upp á dagsferðir yfir allar helstu perlur Norðulands, má þar nefna Öskju, Herðubreið, Dettifoss, Goðafoss, Aldeyjarfoss, Tröllaskaga, Flatey, Huldulandið, Hrísey og Kaldbak.Hægt verður að bóka flug hjá Sportferðum í síma 894 2967 og með tölvupósti sporttours@sporttours.is.
Ferðirnar sem er í boði:
Akureyri Mountain tops with a Twist
Útsýnisflug yfir Akureyri með mountain top landing stutt stopp á Kerlingu á Tröllaskaga. Ferðin tekur 30-45 mínútur með stoppi. Verð 39.000-kr. á mann lágmark 3 farþegar.
Arctic Surf and Turf
Akureyri, Tröllaskagi, Siglufjörður, Hrísey, Hulduland, stopp á Siglufirði og í Hrísey. Ferðin tekur 2-3 tíma og kostar 119.000- kr. á mann lágmark 3 farþegar.
Diamonds are forever
Akureyri, Goðafoss, Aldeyjafoss, stopp í Mývatni og farið í Jarðböðin í Mývatnssveitt og svo Ásbyrgi, Akureyri. Verð 149.000- kr. á mann, lágmark 3 farþegar.
Our Uncut Diamond
Akureyri, Mývatn, Askja, Herðubreið, Dettifoss, Ásbyrgi, Flatey, Hulduland og Kaldbakur. Stoppað er við Öskju og í Flatey. Ferðin tekur um 4 tíma og kostar 269.000-kr. á mann lágmark 3 farþegar.