Útsvarstekjur Akureyrarbæjar voru samtals 1,054 milljónir króna í janúar og febrúar, en á sama tíma á síðasta ári voru tekjurnar 961 milljón. Munurinn er 92 milljónir króna, samkvæmt tölum Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Tekjur Dalvíkurbyggðar hafa dregist saman. Útsvarstekjurnar voru 115,8 milljónir í janúar og febrúar á þessu ári, en á sama tíma í fyrra voru tekjurnar 120 milljónir. Tekjur Eyjafjarðarsveitar hafa aukist, eru í ár 51,3 milljónir sem er hækkun um 3 milljónir króna.
karleskil@vikudagur.is