Sveitarfélög landsins geta samkvæmt lögum ákveðið útsvarshlutfall á bilinu 12,44% til 14,48%. Af 74 sveitarfélögum leggja 65 á hámarksútsvar og tvö leggja á lágmarksútsvar.
Á Norðurlandi er aðeins eitt sveitarfélag sem ekki er með útsvarið í hámarki.
Í Tjörneshreppi er hlutfallið 14,05%, en öll önnur sveitarfélög eru með 14,48% útsvar.
Það má því segja að Tjörneshreppur sé skattaparadís norðursins.
Tjörneshreppur er eitt fámennasta sveitarfélag landsins, íbúar um áramótin voru 55 talsins.
karleskil@vikudagur.is