Félag leikskólakennara hefur boðað til vinnustöðvunar fimmtudaginn næstkomandi þann 19. júní. Ef til vinnustöðvunar kemur munu leikskólar á Akureyri ekki geta tekið við börnum. Það starfsfólk sem ekki er í Félagi leikskólakennara mun mæta til vinnu og vinna önnur störf þann daginn. Foreldrar eru beðnir um að fylgjast vel með fréttum að kvöldi miðvikudagsins næstkomandi og morgni fimmtudags.
Fulltrúar Félags leikskólakennara sitja nú á fundi með fulltrúum Sambands íslenskra sveitarfélaga hjá Ríkissáttasemjara en lítið hefur gengið í samningaviðræðum. Þann 2. júní sl. samþykkti yfirgnæfandi meirihluti leikskólakennara vinnustöðvun sem mun koma til framkvæmda 19. júní ef ekki nást samningar.