Útlit fyrir kalskemmdir breytist veðrið ekki til batnaðar

Svellbunkar hafa þakið tún frá því í haust. Ástandið er verst í utanverðum Eyjafirði
Svellbunkar hafa þakið tún frá því í haust. Ástandið er verst í utanverðum Eyjafirði

„Enn bíða menn og vona að bregði til betri tíðar,“ segir Ólafur G. Vagnsson ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar, en svell hefur legið yfir túnum í Eyjafirði í hátt í þrjá mánuði. Miðað er við að liggi tún undir svelli í þrjá mánuði eða meira séu verulegar líkur á kalskemmdum.

Ólafur segir of snemmt að segja fyrir um hvort kal verði í túnum á komandi vori, en komi ekki góður hlýindakafli sem nái að bræða klakann á næstu tveimur til þremur vikum blasi við að einhverjar kalskemmdir verði í vor.

Fyrstu stórhríðar vetrarins urðu í nóvemberbyrjun þannig að senn verða liðnir þeir þrír mánuðir sem þumalputtareglan miðar við.

„Auðvitað gæla menn við að breyting verði á, enda mega bændur ekki við því að tún kali á komandi vori, margir eru heylitlir, fyrningar eru með minnsta móti og nú treysta menn á að heyskapur gangi vel næsta sumar og heyfengur verði góður. Það er ekki á það bætandi ef til þess kemur að mikið verði um kalskemmdir ofan á þær hremmningar sem áður hafa dunið yfir,“ segir Ólafur.

Ástandið er hvað verst í utanverðum Eyjafirði, í hluta Hörgársveitar, Árskógsstönd og Höfðahverfi í Grýtubakkahreppi, en víða skárra frammi í firði, í Eyjafjarðarsveit. Meiri snjór og færri hlákukaflar hafa verið austan Vaðlaheiðar og þar er svellmyndun ekki eins mikil.

Nýjast