Úrslitin vonbrigði. Enginn er ómissandi, segir Björn Valur Gíslason

Björn Valur hafnaði í sjöunda sæti í forvali Vinstri grænna í Reykjavík, en hann sóttist eftir 1. til 2. sæti.Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningamálaráðherra og Svandís Svavarsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra munu skipa fyrstu sætin á framboðslistum flokksins  í höfuðborginni, Katrín hlaut flest atkvæði eða 547 en Svandís 432.Árni Þór Sigurðsson og Álfheiður Ingadóttir alþingismaður munu skipa annað sætið í Reykjavíkurkjördæmunum. Árni Þór fékk 324 og Álfheiður 322.

„Útslitin eru vonbrigði, ég setti markið hærra og það eru alltaf vonbrigði að ná ekki markmiðum sínum,“ segir Björn Valur.

Er einhver nærtæk skýring á því að þú hafnar svona neðarlega ?

„Það var viðbúið að það yrði snúið að koma sér fyrir í nýju kjördæmi. Ég á ekki þétt bakland í Reykjavík, þ.e. hvorki fjölskyldu né ættmenni sem gátu stutt mig. Ég óskaði einfaldlega eftir áliti almennra félagsmanna Vinstri grænna í Reykjavík á störfum mínum og vilja til að starfa í þeirra umboði. Þeim leist ekki á það og ekkert við því að segja.“

Voru það mistök hjá þér að skipta um kjördæmi ?

„Nei, það voru ekki mistök. Ég tel að Reykvíkingar eigi ekki að sætta sig við neitt minna en þrjá Vinstri græna þingmenn í hvoru Reykjavíkurkjördæminu. Að því á flokkurinn að stefna í borginni, ekkert minna. Ég taldi mig geta lagt því lið en það geta líka aðrir gert og það varð niðurstaðan. Ég er ekki ómissandi ef einhver heldur það.“

karleskil@vikudagur.is

Nýjast