Úrslitin á Íslandsmóti karla í íshokkí ráðast í kvöld þegar SA Víkingar taka á móti Birninum í fimmta leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn. Staðan í einvíginu er 2-2 en vinna þarf þrjá leiki til að landa titlinum. Það er því um hreinan úrslitaleik að ræða í kvöld sem hefst kl. 19:30 í Skautahöllinni á Akureyri.