Undanúrslitin á Íslandsmóti karla í blaki hófust með tveimur viðureignum sl. þriðjudag. HK vann Þrótt Neskaupstað, 3-0, og Stjarnan hafði betur gegn KA, 3-2, eftir hörkuleik. KA og Stjarnan mætast að nýju í kvöld í KA-heimilinu kl. 19:30. Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki leikur til úrslita. Takist KA að knýja fram oddaleik fer hann fram á heimavelli Stjörnunnar á sunnudaginn eða mánudaginn kemur.