Úr 20 þúsund gestum í 75 þúsund

„Eftir að snjóframleiðslukerfið kom til sögunnar fjölgaði gestum mikið. Þeir voru áður í kringum 20 þúsund, en eftirað kerfið var sett upp hafa þeir verið um 75 þúsund talsins á hverju ári. Staðan er sem sagt allt önnur og betri. Þessi vika verður til dæmis mjög stór og annasöm hjá okkur,  nemendur grunnaskóla af höfuðborgarsvæðinu koma hingað, þar sem vetrarfrí er í skólunum fyrir sunan. Vetrarfríin  í grunnskólum landsins hafa verið okkur sérstaklega gjöful, slíkar vikur eru jafnvel stærri en sjálfir páskarnir,“ segir Guðmundur Karl Jónsson  forstöðumaður Hlíðarfjalls.

Mikilvægi Hlíðarfjalls

 „Hlíðarfjall hefur sannarlega mikið aðdráttarafl og er líklega einn stærsti og öflugasti ferðamannastaður landsbyggðarinnar yfir vetrarmánuðina. Hérna er æfingaaðstaða Skíðafélags Akureyrar og jafnframt má segja að Hlíðarfjall sé uppeldisstöð fyrir ungt fólk.“

Nýjast